Prófíll

  • Nafn: Hannes og Ólöf
  • Heimilisfang: Kagså kollegiet 36
  • Atvinna: Hannes - námsmaður / Ólöf - Snyrtifræðingur
  • Um mig: Búsett í Köben með okkar yndislegu strákum !!

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Úff púff hvað er heitt !!!

03. júní 2008 klukkan 21:17
Síðustu daga er búið að vera um 30 stiga hiti... og eins mikið og maður kvartar og heimtar að fá sólina þá var ég mjög fegin að hafa verið að vinna í dag...

Mamma og pabbi eru að koma eftir 3 daga.. fékk þau til að koma í sólina til okkar. Mamma fer með okkur á karíus og baktus á laugardaginn og pabbi og Hannes ætla að drekka bjór á meðan. Annars held ég að það verði mikið legið í sundi úti í garði og notið sólarinnar.

Næsta vika er svo alveg fullbókuð hjá okkur, Atli og Kærastan að koma út, við til Jótlands að hitta Agnesi og svo Brósi og Rebekka að koma á sunnudeginum.. nóg að gera..

En þetta var nú ekki lengra í bili, búin að vera að vinna í dag og svo setja neglur í kvöld.. vinna á morgun og föstudag mín er mega þreytt núna.


Sólskinskveðjur í bili

P.S, spain er um 28 ° áfram næstu vikuna.. Svalur
Hannes og Ólöf
5 athugasemdir

Sól og sumar

30. maí 2008 klukkan 11:57

Ég veit, ég veit löngu kominn tími á nýtt blogg...

Ég er bara búin að vera að vinna og svona.. Já vinna ég er komin með vinnu.
Fékk vinnu í barnafataverslun niður við Nýhöfn sem heitir Óli Prik. Vinn 2 daga í viku sem er bara æðislegt fyrir mig. Það er rólegt að gera í búðinni en ohh það er svo mikið að flottum fötum þar að ég gæti alveg misst mig ef ég ætti lítið barn. Sem betur fer er voða lítið á mína stóru stráka þar.

Fyrir 2 vikum byrjaði verkfall hjá leikskólum herna úti. Börnunum er deilt á vikur sem þau mega mæta í takmarkaðan tíma og voru mín börn einu í leikskólanum sem ekki fengu neina viku. Við fórum uppí ráðhús og rifust aðeins og fengum eina viku fyrir þá. Sú vika er búin þannig að núna eru þeir hættir í leikskóla og byrja í skólanum þegar verkfallið leysist.
Útaf verkfallinu verður engin sumarhátíð í leikskólanum og þess vegna ákváðum ég og ein önnur mamman að halda sumarhátíð fyrir stærstu deildina. Við erum búnar að vera að skipuleggja hana og verlsa pylsur og fleira. Hátíðin verður núna á eftir og ég held að þetta verði flottasta sumarhátíð sem haldin hefur verið hehe....

Annars er ég að bíða eftir svari frá mömmu og pabba.. er að reyna að fá þau í heimsókn í næstu viku hehe.. svo eru tengdó og systa að koma í ágúst.. nóg að gera þá.

Svo má ekki gleyma að brósi er að flytja út yfir sumarið núna eftir 16 daga.. hlakka rosa til að fá hann og strákarnir eru líka að farast úr spenningi.

Jæja verð að þjóta að undirbúa sumarátíðina í leikskólanum

P.s. það er spáð hitabylgju um helgina hérna Svalur

Ciao

Hannes og Ólöf
Engin athugasemd

Ferðatímabilið búið í bili ;)

17. apríl 2008 klukkan 19:50
Úff hvað er búið að vera gaman og mikið að gera undanfarið.
Ísland var náttla bara gaman, bláa lónið og gítarpartý aldarinnar held ég barasta.

Skelltum okkur svo austur á föstudaginn langa með Rakel, Bo og Stine (Rakel býr á kolleginu og var á Íslandi með Bo og Stine) Við fórum í smá jeppaferð með þau og sjæs það var stuð. Keyrðum innað Reykholtslaug að ég held, þar er óvart á þessum tíma en kallinn minn lætur sér ekkert segjast og keyrði bara utan vegar og oní fljót og læti.
Þegar við komum svo innað lauginni sem by the way er lokuð var vatnið æði, hefðum öll farið oní ef við værum með sundföt en þar sem kallarnir eru svo heppnir þá skelltu þeir sér bara oní á brókinni. Við fórum bara í fótabað í staðinn.

Tvem vikum seinna var svo ferðinni heitið til Möltu. Strákarnir voru í pössun hérna á kolleginu, Takk æðislega, Sara og Viddi, Jóhanna og Hörður og Þórunn og Jón Ragnar  Hlæjandi


Við fórum á fimmtudeginum í geggjaða siglingu til eyjarinnar Comino og Gozo ( veit ekki hvort það sé rétt skrifað) Þar lágum við allan daginn á dekkinu, á bikiní og sleiktum sólina og drukkum bjór. Stoppað var á leiðinni og þá hoppuðum við útí miðjarðarhafið og syntum. Sjórinn var ekki nema 16° en við létum það ekki stoppa okkur.

Föstudagurinn fór í að liggja á ströndinni allan daginn  og sóla sig...

Á laugardeginum leigðum við bílaleigubíl, sem var 8 manna, tveir framí, svo afturí voru tveir bekkir á hlið og það var opið ( set inn mynd bráðum) okkur leið eins og í bíomynd þar sem var verið að smygla fólki inní landið hehehe. Við keyrðum semsagt um Möltu og það tekur ekki langan tíma því hún er svo lítil.
Við stoppuðum á strönd þar sem við fórum á Jetski og hef ég aldrei skemmt mér og verið eins hrædd á sama tíma á ævinni.. Var með verki í höndunum allan daginn eftir að hald a svo fast utan um Hannes..

Sunnudeginum var eytt í Valetta sem er höfuðborgin. Mjög sérstök borg, hún var byggð þannig að fyrst voru varnarmúrarnir byggðir í hring og svo borgin byggð ínní. ( held þetta sé alveg rétt hjá mér) sov er þetta eins og í San Fransisco brekkurnar alveg svakalegar upp og niður..

Ég mæli eindregið með því að fara þarna og ég ætla aftur með strákana.. Ef þið viljið fara á stað sem er nánast ekki hægt að versla föt og þannig á er þetta staðurinn..
Thumbs up for Malta

Ég vil þakka Lindu og Gústa fyrir frábæra gestrisni á Möltu.


En núna þarf ég að fara að skutla Alexander inní rúm, Patrekur liggur veikur sofandi uppí rúmi og ég og Alexander ætluðum að horfa á spiderman. Hann kjaftaði og kjaftaði samfleytt og svo heyrðust bara hrotur, þá var minn dottinn útaf hehehe.


Á döfinni er svo afmæli á mánudag og erum við að fara að bjóða deildinni þeirra á leikskólanum hingað heim oh my god svo verður afmælisveisla þarnæstu helgi fyrir vini og vandamenn.

see ja leiter
Ólöf og co
Hannes og Ólöf
5 athugasemdir

Ísland fagra Ísland !!!

12. mars 2008 klukkan 20:46

Ohh hvað ég elska að ferðast og vá hvað ég er virk í því núna þennan mánuðinn.

Síðustu helgi fórum við famílían til Sverige með stórum hóp af æðislega fólki. Þessi árlega skíðaferð var frábær í alla staði.
Við ókum á fimmtudeginum í Pajero jeppanum sem við fengum lánaðan, algjörir töffarar, til Sverige og tók ferðin um 5 tíma. Drengirinir orðnir frekar mikið pirraðir að sitja í bíl svona lengi greyin litlu.
Strákarnir voru að fara í fyrsta skipti á skíði og bjóst ég nú ekki við miklu þar sem þeir eru soddan gungur þegar þeir taka sig til. En ég ákvað að leigja nú skíði í 2 daga þar sem það var ódýrara en einn dag í einu. Ég segi nú bara eins gott... ég er svo stolt af börnunum mínum.Hlæjandi

Við hjálpuðum þeim fyrstu ferðirnar, kenna þeim að fara í plóg og svona og svo voru þeir bara farnir að fara einir upp og niður brekkuna. Ef þeir duttu þá hlógu þeir bara og átu smá snjó.

Hannes var á snjóbrettinu sínu sem Frikki kom með út til hans og var ekkert smá flottur kallinn.. Hann kann taktana sko.

Á laugardeginum ákvað ég að leigja mér skíði þar sem ég þurfti ekki að sinna strákunum þeir voru bara eins og skutlur niður fjallið.
Ég fór fyrstu ferðina mína með Alexander, Patrekur nennti ekki að bíða eftir mömmu sinni. En Alexander var alla ferðina.. Flott mamma, og svo bremsa og svo áfram... Hann kenndi mér á skíði greyið.Ullandi

Ég var orðin nokkuð góð með mig og fannst ég helv.. klár og ákvað því að fara í stóru brekkuna BIG MISTAKE...Skömmustulegur Ég lagði af stað og fór í tremmakast... sá hvað brekkan var brött og löng. Ég komst niður á endanum, búin að detta tvisvar eða þrisvar og svo bara nei ekki aftur.. ég held mig í barnabrekkunni.

Kvöldin voru nýtt í að fara í pottinn, gufu og spila og drekka... Ekkert smá gaman. Við spiluðum partý og co nýja sem ég elska og við Þórunn erum nú nokkuð góðar saman í því hehehe... og eins og Þórunn segir þá höfum við sko alltaf rétt fyrir okkur Glottandi

Svo er það bara fagra Ísland á morgun og er ég búin að vera að pússa og sjæna íbúðina í allan dag því við ætlum að leigja hana á meðan. Mjög sátt við það þá neyðist maður til að þrífa hehehe

Á föstudaginn ætlum við að skella okkur í Bláa lónið og njóta lífsins, svo verður bara slakað á notið lífsins restina af heimsókninni.

Skyndiákvörðun var svo tekin í fyrradag... En við ætlum að skella okkur til Möltu 9.apríl til 14 apríl  í sólina. Svalur  Gústi vinur Hannesar býr þar núna með kærustunni sinni og ætlum við með Lilla í heimsókn í nokkra daga. Skoða Sikiley og sleikja sólina.
Þórunn bestasta og Sara bestasta og kallarnir þeirra bestustu ætla að passa börnin fyrir okkur.. Ekkert smá gott að eiga svona frábæra vini sem eru tilbúnir til að hjálpa manni þegar þörf er á  Glottandi Þau eiga sko öll inni STÓRA greiða hjá okkur og sérstaklega Þórunn sem ætlar líka að keyra okkur útá flugvöll á morgun... Takk sæta Glottandi

Nóg af slúðri og tjatti, halda áfram að pakka

Sjáumst á morgun Ísland

Hannes og Ólöf
2 athugasemdir

Snillingar !!!

28. febrúar 2008 klukkan 13:16
Jæja fréttir af pókermótinu..
Ég var í 5 sæti (Ólöf) af 47 sætum. Og eina á lokabordinu sem keypti sig ekki aftur inn.
Mín er sko bara nokkud sátt vid tad skal ég ykkur segja.

En núna er vika í skídaferdina til Svítjódar og hlakkar okkur alveg svakalega mikid til. Stór hópur sem fer árlega er ad fara og leigd eru tvo hús og fullt af börnum.
Vid förum á fimmtudaginn í næstu viku og verdum framá sunnudag.

Svo fimmtudaginn eftir tad erum vid ad koma í snjóinn á Íslandi. Allir eru ad verda soldid spenntir fyrir ad koma heim og hitta alla.

Búid er ad plana ferd í blaa lonid a föstudeginum, borda í lóninu og svo partý annars verdur kíkt austur og slakad adeins á. Farid í sund kannski einu sinni eda á hverjum degi hehehe

Jæja farin í tvottahúsid

Hilsen
Hannes og Ólöf
Engin athugasemd

Takk fyrir okkur

21. febrúar 2008 klukkan 11:46
Vid viljum byrja á ad takka innilega fyrir allar kvedjurnar sem vid höfum fengid.

Lífid gengur ágætlega núna.. madur tekur bara einn dag í einu.
Vid erum svo ad fara í skídaferd í byrjun mars til Svítjódar og svo til íslands í vikunni á eftir eda 13.mars.
Tad verdur rosa gott ad komast í annad umhverfi og gleyma sér adeins.

Strákarnir eru svaka spenntir ad fara til Íslands og spyrja oft hvenær páskarnir komi.. Teim finnst tetta samt mjöög löng bid, greyunum litlu.

Tad er alltaf brjálad ad gera í vinnunni hjá Hannesi og ég er ad fara ad taka tvo áfanga í meistaraskólanum.

Frikki bródir hans Hannesar var svo hjá okkur í sídustu viku og fóru teir brædur á tónleika med The Cure sem voru víst svaka flottir. Svo var farid í dýragardinn og fleira og slakad á.

Ég verd nú samt ad segja frá einu sem vid gerdum líka og monta mig adeins í leidinni. En málid er tannig ad tad rer pínu póker ædi hér á kolleginu hjá strákunum, teir eru búnir ad vera ad hittast einu sinni í viku og spila. Svo núna á laugardaginn er póker´mót hér á kolleginu, 40 manns ad keppa og haldidi ekki ad mín ætli bara ad vera med.
Vid tókum semsagt smá æfingaleik á fimmtudaginn med Frikka. Vorum ég, Hannes , Frikki, Dadi, Jón Ragnar, Höddi og Biggi.
Ég var ad spila póker í annad skipti og é VANN tá alla. Fór út med 450 DKK. Ekki slæmt, enda voru teir nú ekki alveg sáttir sá madur tó teir vildu ekki vidurkenna tad.

En ég ætla semsagt ad vinna mótid á laugardaginn...........

Læt ykkur vita hvernig fer.

Bestu kvedjur og enn og aftur takk fyrir studninginn

Ólöf og Hannes og litlu grísirnir okkar
Hannes og Ólöf
2 athugasemdir

Lífid er ekki alltaf sanngjarnt....

29. janúar 2008 klukkan 20:13
Vid hofum ákvedid ad skrifa hér adeins um tad sem hefur gerst í lífi okkar undanfarid.

Vid erum ekki tilbúin fyrir ad tad sé hringt í okkur enntá, heldur geti tid kommentad ef tid sem lesid viljid.

Tannig er tad ad í nóvember sídastlidinn fengum vid tær fréttir ad vid ættum von á barni. Ad sjálfsögdu vorum vid himinlifandi glöd, tví tetta var jú planad. Allt gekk vel og fyrir utan miklu treytu hjá mér.

Tann 14. Janúar fórum vid svo í hnakkatykktarmælingu og voru mjög spennt yfir ad sjá litla engilinn okkar og var planid ad segja strákunum frá tessu um kvöldid og sýna teim mynd af ófæddu systkini sínu. Mesta stressid var hvort um væri ad ræda eitt eda tvö, en aldrei datt okkur í hug ad neitt annad kæmi í ljós. Madur hugsar jú alltaf tad kemur ekkert fyrir hjá mér.

Tegar í sónarinn var komid, sást ad ekki var allt í lagi. Hnakkatykktin var of mikil og er tad merki um ad ekki er allt í lagi. Tetta er mælt í líkundum tar sem allt fyrir ofan 1 : 300 merkir ad allt sé í lagi. Hjá okkur voru líkurnar 1:2.

Vid komum tví aftur 2 tímum seinna ad hitta yfirlæknirinn, og í framhaldi af tví var tekin legásstunga.
Vid tók versta bid í lífi okkar í 2 daga tar til hringt var frá spítalanum og vid bedin ad koma ad tala vid tau.

Litli engillinn okkar var med litnigagalla 21, 13 og 18. litningagallai 21 er downs syndrom en tegar 13 og 18 eru líka merkir tad ad tad var tad veikt nú tegar ad ekki hefdi verid víst ad lifa af alla medgönguna.

Næsta ákvördun sem beid okkar var erfidasta ákvördun sem vid höfum turft ad taka og bjóst ég aldrei vid ad turfa ad taka.
Í samrádi vid læknana og teirra útskýringar var ákvedid ad framkalla fósturrof.

Vid fengum ad sjá litla engilinn okkar og tad var mjög gott ad fá ad sjá fallega engilinn og kvedja almennilega.

Ad missa fóstur er erfidasta lífsreynsla sem nokkur getur lent í, en tad kennir manni líka ad madur á ad meta tad sem madur hefur. Vid eigum tvö falleg og heilbrigd börn og tad gefur lífinu lit á tessum erfida tíma.

Mamma kom út til okkar og var hér hjá okkur í eina viku. Ólýsanlegur studningur sem tad var. Takk ædislega fyrir tad mamma.

Ég fann sídu á netinu um daginn sem mér hefur fundist mjög gott ad leita til og er tar einnig ad finna rád til adstandenda. Teir sem hafa geta kíkt á hana www.litlirenglar.is

Eins og sagdi í byrjun tá viljum vid ekki ad allir hringi í okkur teir sem vilja sýna studning geta commentad í bili allavega.


Til lítils engils
Mamma, ekki gráta mig, ég veit þú saknar mín.
Mig langar að vera hjá þér og þerra tárin þín.
Ég fékk aldrei að sjá þig og blíðu brosin þín,
Guð vantaði lítinn engil og kallaði mig til sín.

Segðu pabba að ég elsk´ann því pabbi á líka bágt,
faðmaðu hann fyrir mig og hvíslaðu ofurlágt.
Segð´onum frá stjörnunni sem á himnum skærast skín,
kennd´onum að þekkja hana því hún er stjarnan mín.

Núna áttu lítinn engil sem vakir yfir þér,
ég passa líka pabba, segðu honum það frá mér.
Það eru hér svo margir sem þykir vænt um mig,
fjöldi fallegra engla sem gæta mín fyrir þig.

Tendraðu lítið kertaljós til að lýsa þér til mín,
láttu á leiðið mittt hvíta rós, það læknar sárin þín.
Þegar sorgarinnar skuggi dvín, þá muntu minnast mín
og tár þín verða gleðitár því ég verð ávallt þín.
Mamma
Hannes og Ólöf
13 athugasemdir

24. desember 2007 klukkan 16:38
Gledileg Jól allir saman nær og fjær.

Erum ad undirbúa matinn & svo ad fara ad borda & opna alla pakkanna jesssssssssssss.

Gaman gaman vid sátum & vorum ad drekka kaffi saman í dag tá sagdi Patrekur ad fyrsti pakkinn sem hann ætlar ad opna væri frá Alexander tví hann væri svo spentur ad vita hvad bródir hans keypti.

Annar fórum vid fedgarnir , (hundurinn bono) Bo Ævar , Emil Loki & Hørdur í gøngutúr nidur i Smørum ad gefa øndunum braud  tví allir varda ad få ad borda á jólunum. Endurnar fengu braud , Bono fær svínseyra UUUMMMMM verdi honum ad gódu & vid fáum hamborgarahrygg ummm

En nú verd vid ad kvedja ykkur og segjum enn & aftur Gledileg jól allir saman 

knús og kossar frá okkur 
Hilsen Kagså kollegiet 36
 
P.s
Jólakortinn koma milli jóla og nýársBrosandi 
Hannes og Ólöf
5 athugasemdir

Stutt blogg núna!!

27. nóvember 2007 klukkan 20:51
Jamm og já, það verður stutt blogg í dag, vegna mikillar þreytu hér á bæ.

Það er sko búið að vera alveg brjálað að gera hjá mér í skólanum undanfarið og á ég einungis eitt próf eftir og þá er rólindis desember mánuðu hjá mér oojá. Reyndar þarf ég að fara að byrja á jólaundirbúningi, kaupa jólagjafir og sona. Allt áður en mamma og pabbi koma og tengdó. Svo er Eva og Ingibjörn að koma daginn sem tengdó fara. Allt að verða crasy!!!!

En ég ætla að fara með mömmu og pabba á fimmteginum, kannski í spa, út að borða og svo ætlum við á jólatónleika í Holmens kirke, verður örugglega svaka flott.
Þau gömlu verða svo með saumaklúbbnum fram á sunnudag og ætla ég þá að fara með allan skarann í jólamarkað í Bella Center.

Og audda elda góðan mat um kvöldið fyrir hana múttu sem verður deginum eldri þann dag. til lykke með það ;)

Annars verður líka bara hygge hygge held ég , labba strikið og skoða jólin.

Ég er svo að fara næsta laugardag með nokkrum skvísum héðan á jólamarkað í klaustri klukkutíma héðan í burtu, Hlakka mikið til þar sem allir sem þekkja mig vita hvað ég er mikið jólabarn.

Á sunnudaginn erum við svo að fara á Skoppu og Skrítlu leikrit, sem strákarnir geta ekki beðið eftir.

En jæja sagði að þetta yrði stutt, vegna þreytu

læt meiri fréttir seinna

Venlig hilsen
Ólöf og familie
Hannes og Ólöf
1 athugasemd

Komnar myndir

22. október 2007 klukkan 21:39
Loksins setti inn nokkrar myndir kemur meira bráðum... Núna eru þær í linknum sem heitir Mynidr EKKI myndasíðan okkar...

Kv. Ó
Hannes og Ólöf
Engin athugasemd